Í dag birti Fiskistofa bráðabirgðatölur fyrir fyrstu 7 mánuði fiskveiðársins. Á tímabilinu hefur afli krókaaflamarksbáta aukist um rúman fjórðung milli fiskveiðiára. Heildaraflinn 31. mars var kominn í 36.270 tonn á móti 30.638 tonnum í fyrra, aukning um 7.251 tonn. Þar af var aukningin í þorski, ýsu og steinbít 5.759 tonn. Mest bættu þeir við sig í ýsu 43,2%, aflinn þar kominn í 11.454 tonn á móti 7.997 tonnum á sama tíma í fyrra.
Misjafnlega hefur gengið á kvótann í hinum ýmsu tegundum. Þannig á eftir að veiða helminginn af þorskinum, fjórðung af ýsunni og tvo þriðju steinbítskvótans.









Skrifa athugasemd