Það sem liðið er grásleppuvertíðar á Grænlandi er ljóst að mikill samdráttur er í veiðunum miðað við síðasta ár. Eftir því sem næst verður komist er minnkunin um 40%.
Enn er þó allt of snemmt að spá um heildarveiðina á Grænlandi, þar sem maímánuður er að jafnaði besti veiðitíminn.
Noregur er einnig með heldur minni veiði en í fyrra, en þar er samdrátturinn rúm 12%. Verðið hefur lækkað um 14 - 15%, svo heildaraflaverðmætið er nú um 24% minna í Noregi, miðað við sama tíma í fyrra.
Á Nýfundnalandi áttu veiðarnar að hefjast 1. maí, en hefur verið frestað meðan reynt er að ná samkomulagi um verðið. Allt stefnir í að ekkert samkomulag náist milli samtaka veiðimanna og kaupenda og var dagurinn í dag sá síðasti til þess arna. Samkvæmt þarlendum reglum fer því deilan fyrir gerðardóm, sem mun væntanlega fella úrskurð sinn strax eftir helgina.











Skrifa athugasemd