Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Nægur fiskur en fáir bátar - Landssamband smábátaeigenda

Nægur fiskur en fáir bátar

| Athugasemdir (0)

Handfærabátar eru nú óðum að hefja róðra. Rætt var við Þorgeir Guðmundsson á Þyt MB sem í mörg sumur hefur gert út frá Arnarstapa. Hann sagðist hafa farið í 4 róðra í vikunni og afli hefði verið góður. Fiskverð er ágætt um þessar mundir hefur hækkað um 20 – 30 krónur frá því í fyrra og því létt yfir mönnum.
Þorgeir sagði höfnina á Arnarstapa vera lítt setna um þessar mundir, hvað varðar fjölda báta. „Þegar sóknardagakerfið hefði verið var höfnin sneisafull á þessum árstíma, ekki óalgengt að um 50 bátar væru þar. Það hefði verið tilkomumikil sjón að horfa á flotann týnast á miðin, einn og einn frá því eldsnemma á morgnanna. Þá var ekki síður líflegt þegar bátarnir skiluðu sér inn til löndunar. Örtröð á bryggjunni og létt yfir mönnum. Nú er rýmra um báta hér í höfninni – aðeins 15 - 20 bátar. Fiskleysi á miðunum væri ekki ástæðan, heldur væri um að ræða flótta úr stéttinni. Allt of margir hafa selt kvótann og eru því kvótalausir og gætu ekki notið þess lengur að fara á skak og njóta þeirrar dásemdar sem það biði upp á“, sagði Þorgeir um leið og hann kvaddi og bauð mér að skoða klettana við Arnarstapa úr Þyti MB þegar ég ætti leið hjá.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231