Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Óheimilt að landa óslægðu um helgar án undanþágu - Landssamband smábátaeigenda

Óheimilt að landa óslægðu um helgar án undanþágu

| Athugasemdir (1)

Vakin er athygli á að á tímabilinu 1. júní til og með 31. ágúst er óheimilt að landa óslægðum fiski af dagróðrabátum á laugardögum og sunnudögum.
Fiskistofa getur veitt undanþágu frá þessu banni, enda verði sýnt með óyggjandi hætti fram á að skilyrði um slægingu í landi séu uppfyllt.

Fiskistofa hefur birt á heimasíðu sinni lista yfir fyrirtæki
http://fiskistofa.is/skjol/frettir/slaegingarundanthaga_2006.pdf
sem undirritað hafa yfirlýsingu þar sem fram kemur að fiskur sem landað er og tekinn til aðgerðar og / eða frekari vinnslu er aðgerður innan 12 tíma frá því að honum var landað.
Sjá nánar: http://fiskistofa.is/skjol/frettir/yfirlysing_fiskmottakenda_2006.pdf

1 Athugasemdir

Það er með ólíkindum að þessi reglugerð sé ekki numinn úr gildi. Þetta er algjör tímaskekkja, það fer ekki nokkur maður að landa fiski til þess að láta hann skemmast yfir helgi. Þetta er bara óþarfa pappírsvinna sem gerir mönnum lífið leitt.
Það var hugsanlega þörf fyrir þetta á dögum sóknardagakerfisins, en í dag er þetta út í hött.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is