Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Brimfaxi 1. tlb. 2006 komið út - Landssamband smábátaeigenda

Brimfaxi 1. tlb. 2006 komið út

| Athugasemdir (0)

Félagstímarit LS, Brimfaxi, kom út nú fyrir sjómannadaginn og hefur verið sent félagsmönnum sem og dyggum stuðningsmönnum LS. Að öllu jöfnu koma út tvö tölublöð á ári og mun hið síðara koma út fyrir jólin.

Ýmissa grasa er að kenna í Brimfaxa sem endranær. Sr. Karl Matthíasson skrifar hugleiðingu, þátturinn „Heimahöfn" fjallar um Höfn í Hornafirði og er að auki bráðskemmtilegt tveggja manna tal Unnsteins Guðmundssonar stjórnarmanns í LS frá félagi smábátaeigenda á Höfn og Páls Dagbjartssonar, en hann „hætti til sjós og fékk sér Sómabát“.

Þá er fjölbreyttur fróðleikur um nýjustu tækni, fiskveiðistjórnun í fjarlægum löndum ásamt ýmsu öðru um málefni líðandi stundar.

Brimfaxi kom fyrst út árið 1985.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231