Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
LS hvetur sjávarútvegsráðherra til að gefa út 220 þús. tonna jafnstöðuafla til þriggja ára - Landssamband smábátaeigenda

LS hvetur sjávarútvegsráðherra til að gefa út 220 þús. tonna jafnstöðuafla til þriggja ára

| Athugasemdir (1)

LS hefur sent sjávarútvegsráðherra bréf þar sem félagið hvetur hann til að auka þorskkvótann um 22 þús. tonn á komandi fiskveiðiári. Næstu 3 árin verði kvótinn 220 þús. tonn. Tillagan er samhljóða því sem LS mælti með fyrir ári síðan og byggist á fjölmörgum þáttum sem því miður hafa ekki til þessa fengið nægjanlegt vægi stjórnvalda. Þar efst á blaði er tilfinning sjómanna, þeirra sem eru á vettvangnum allan ársins hring. Hana byggja þeir á áratuga reynslu, skoðunum dagbóka þar sem hliðstæðna er leitað, ár- og veðurfari, hitastigi, magainnihaldi, holdafari þorsksins og síðast en ekki síst aflabrögðum.

Í tillögum LS til ráðherra er mælt með að ýsukvótinn verði 100 þús. tonn, steinbítur 13 þús. og ufsi 80 þús.
Þá er ráðherra hvattur til að auka línuívilnun, þannig að hún nái til allra dagróðrabáta og löngu og keilu verði bætt við þær tegundir sem ívilnunin gildir um.

Af öðru má nefna það álit LS að banna beina sókn í steinbít með togveiðarfærum á hrygningartíma hans.
Óheimilt verði að nota flottroll við veiðar á síld og loðnu og aukin áhersla verði lögð á mikilvægi loðnu sem fæðu fyrir þorsk.
LS fer fram á að skötuselur sem meðafli verði ekki talinn til kvóta.
Þá fer LS fram á að settar verði reglur um hámark á lúðu sem meðafla við dragnótaveiðar.

1 Athugasemdir

Ég er algjörlega ósammála þessari ósvífnu hvattningu um að allir dagróðrabátar eigi að fá línuívilnun. þessi ívilnun var sett á til þess að vernda störf í litlu sjávarbyggðunum en ekki til að hyggla smáútgerðakóngum.

k.v. Jenni Daða

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231