Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Whole Foods Market í heimsókn á Íslandi - Landssamband smábátaeigenda

Whole Foods Market í heimsókn á Íslandi

| Athugasemdir (2)

Í árafjöld hefur LS haldið því fram að sú stund rynni upp að erlendir kaupendur íslenskra fiskafurða myndu beina athygli sinni að smábátaútgerðinni. Oftar en ekki hefur þessi málflutningur og sannfæring LS vakið hlátur og glósur úr ýmsum áttum, jafnvel innan greinarinnar sjálfrar. Þessum húmoristum og sérfræðingum er nú óhætt að taka til matar síns við að éta ofaní sig spekina.

Carrefour

Skemmst er að minnast þess að Carrefour, næst stærsti smásöluaðili á matvöru í heiminum, heimsótti klakann þegar sjávarútvegssýningin stóð yfir s.l. haust. Þá hikuðu fulltrúar fyrirtækisins ekkert við að lýsa kröfum sínum varðandi innkaup á þorski og ýsu - línufisk, helst lönduðum daglega.

Carrefour tók athyglisverða afstöðu varðandi umhverfismerkingar sjávarafurða, sem um þessar mundir er mikið í umræðunni innan sjávarútvegsins. Fyrirtækið tók þá ákvörðun að skrifa upp eigin siðareglur varðandi innkaup á sjávarafurðum og teiknaði samhliða því eigið umhverfis/gæða/vottunar merki.

Með þessari ákvörðun sinni hafnaði Carrefour vottunarkerfi MSC (Marine Stewardship Council) sem sannarlega hefur verið í sókn á þessu sviði.

Waitrose

Fiskkaupendum í Evrópu fer stöðugt fjölgandi sem gera þá kröfu að fiskafurðir komi frá sjálfbærum og ábyrgum veiðum. Síðasta dæmið er matvörukeðjan Waitrose í Bretlandi - línufisk, takk fyrir.

Hin fáránlega sterka staða íslensku krónunnar hefur gert að verkum að Bandaríkin hafa verið utan þessarar myndar. Þetta er að breytast.

Whole Foods Market

Full ástæða er til að vekja athygli á viðtali sem birtist í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær, 8. júní (bls. B 11). Þar er til svara Julia Obici, aðstoðarframkvæmdastjóri Mið- Atlantshafsdeildar Whole Foods Market verslunarkeðjunnar í Bandaríkjunum. Hún, ásamt þremur yfirmönnum hjá Whole Foods heimsóttu Ísland í lok maímánaðar, fyrst og fremst til að kynna sér smábátaútgerðina og afurðir unnar úr þeim afla sem hún ber að landi.

Þeir sem litið hafa augum verslanir Whole Foods ljúka upp einum munni um að glæsilegri matvöruverslanir fyrirfinnist ekki. Fyrirtækið er byggt á hugmyndafræði um lífrækt ræktaðar matvörur og við innkaup er einnig tekið tillit til félagslegra áhrifa framleiðslunnar.

Í viðtalinu í Morgunblaðinu segir Julia Obici m.a.:

„....við viljum flytja inn fisk beint frá Íslandi og horfum sérstaklega til smábátaútgerðarinnar“.

2 Athugasemdir

Gleðilega sjómannadagshátið félagar.Og til hamingu með árangurinn af að kynna úrvals fisk.Og ekki skulum við gleyma handfærafiskinum.Hann getur líka verið úrvalshráefni ef rétt er með farið.Eitt af baráttumálum handfærafóks,því konur róa líka, og eru skipstjórar.eins og t.d.hér í Sandgerði,er að fá sömu ívilnun úr línupottinum og línubátar fá.Þá munu línuveiðar aukast aftur, fyrir Vestfjörðum,sem annars stðar.
Baráttukveðjur á sjómannadaginn, Sigurgeir.

Í fyrri texta undirritaðs hér fyrir ofan, átti að standa,,þá munu handfæraveiðar aukast, fyrir Vestfjörðum sem annars staðar,,Undirritaður biður afsökunar á mistökunum.Sigurgeir.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231