Hér með er vakin athygli á eftirfarandi tilkynningu Fiskistofu:
„Í 3. mgr. 11. gr. reglugerðar nr. 724/2005, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2005/2006, er kveðið á um frest til flutnings aflahlutdeilda milli skipa.
Samkvæmt ofangreindu reglugerðarákvæði verða umsóknir um staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeilda og krókaaflahlutdeilda milli skipa, ásamt fullnægjandi fylgigögnum, að hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 31. júlí 2006, eigi flutningurinn að hafa áhrif á úthlutun fiskveiðiársins 2006/2007.
Þá þurfa umsóknir um flutning réttinda sem úthlutað var samkvæmt ákvæði III til bráðabirgða við lög nr. 1/1999 (3.000 tonna pottur), um breytingu á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, ásamt fullnægjandi fylgigögnum að hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 31. júlí 2006, eigi flutningurinn að hafa áhrif á úthlutun fiskveiðiársins 2006/2007.
Umsóknir um flutning báta á milli veiðikerfa þurfa einnig að hafa borist Fiskistofu fyrir sama tíma. “











Skrifa athugasemd