Þegar 2 mánuðir eru eftir af fiskveiðiárinu eiga krókaaflamarksbátar eftir að veiða 23% af þorskkvótanum. Samtals er aflinn kominn yfir 30 þús. tonn.
Af ýsu hafa þeir veitt 17.500 tonn, sem jafngildir því að eftir sé að veiða tæpan fimmtung af úthlutuðum kvóta.
Steinbítsaflinn er að nálgast 5000 tonn, en þar er leyfilegt að veiða 5.629 tonn.
Heimild: Unnið upp úr tölum frá Fiskistofu











Skrifa athugasemd