Heildarafli krókabáta er kominn yfir 75 þúsund tonn og er þar um verulega aukningu frá fiskveiðiárinu 2004/2005. Það ár endaði afli þeirra í 62 þúsund tonnum og árangurinn á þessu fiskveiðiári því einstakur.
Athyglisvert er að afli bátanna jókst í öllum tegundum. Í tonnum talið varð mest aukning í ýsu um 6.500 tonn sem svarar til 40% meiri afla en í fyrra. Þorskaflinn jókst um 2.900 tonn – 8%, steinbíturinn um 1.700 tonn – 36% og í ufsa bættu bátarnir við sig 1.050 tonnum sem er 45% meira en á sl. fiskveiðiári.
LS óskar félagsmönnum til hamingju með frábæran árangur á fiskveiðiárinu og velfarnaðar á nýju fiskveiðiári.
Tölur unnar upp úr www.fiskistofa.is











Skrifa athugasemd