Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Sprenging í ýsuafla krókaaflamarksbáta - Landssamband smábátaeigenda

Sprenging í ýsuafla krókaaflamarksbáta

| Athugasemdir (0)

Það sem af er fiskveiðiárinu hafa krókabátar aflað 22.146 tonn af ýsu á móti 15.944 tonnum á sama tíma í fyrra. Þó ýsan hafi oft gefið vel er hér um algjört met að ræða. Þessi mikli afli svarar til tæpra 23% af heildarafla í ýsu.
Hlutdeildin er langt umfram úthlutaða hlutdeild á fiskveiðiárinu sem var 15%, það er því ljóst að gríðarlegur tilflutningur aflaheimilda í ýsu hefur átt sér stað úr aflamarkskerfinu. Það verður því ekki annað sagt en krókabátarnir hafi bjargað því sem bjargað varð varðandi nýtingu á ýsunni á yfirstandandi fiskveiðiári.


Unnið upp úr gögnum frá Fiskistofu

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231