Strandveiðifélagið KRÓKUR hélt aðalfund sinn sl. laugardag. Auk aðalfundarstarfa voru tekin fyrir fjölmörg önnur mál. Fundurinn var ágætlega sóttur og fór hið besta fram, umræður fjörugar og félagsmenn áhugasamir um að fræðast um gang mála við gesti fundarins. Í lok fundar var þátttakendum boðið í kvöldmat í boði félagsins og að honum loknum bauð Fiskmarkaður Patreksfjarðar upp á kaffi og koníak.![]()
Það bar til tíðinda á fundinum að Hjörleifur Guðmundsson formaður Króks til 9 ára og stjórnarmaður í Landssambandi smábátaeigenda sl. 7 ár baðst undan endurkjöri. Hjörleifi voru þökkuð velunnin störf með kröftugu lófataki.
Nýr formaður KRÓKS er Tryggvi Ársælsson Tálknafirði og hlaut hann rússneska kosningu. Þá verður Tryggvi einnig fulltrúi félagsins í stjórn LS.
Fundurinn samþykkti að vísa eftirtöldu til aðalfundar LS.
1. Fundurinn leggur til að ekki sé ástæða til þess að breyta neinu hvað varðar línuívilnun.
2. Lagt er til að LS verði veitt umboð til að leita eftir samningum um kaup og kjör á smábátum fyrir hönd félagsmanna sinna, sem yrðu lagðir fyrir aðildarfélög, til afgreiðslu.
3. Krókur mótmælir harðlega þeim hugmyndum sem uppi eru um breytingar á slægingarstuðlum, sem og reglugerð um vigtun sjávarafla.
Myndin sýnir hluta fundarmanna.











Það gleður mig innilega að menn virðast
ætla að láta af þeirri vitleysu að breyta
línuívilnuninni.
kv. Jenni Daða
Gott kvöld:
Þá liggja málin ljós fyrir, rakalaust vill Krókur viðhalda balaívilnun en Árborg fer fram á jafnræði í línuívilnun.
Menn mega svo geta sér til um afstöðu sjávarútvegsráðherra.
Vilhjálmur Jónsson
Skálanesgata 15
Vopnafirði
Godan dagin félagar..
Það var gott mál að fundurinn samþykkti óbreitt ástand í línuivilnunni...
Þeir hjá Árborg með Þorvald Garðason í fararbroddi eru með rökin "MISMUNUN" ja það finnst mér alla vega skrítin rök,,,það væri mismunun ef þorvaldur væri að leggja línuna sína við hliðina á öðrum bát með beitningarvél og bara annar þeirra fengi þennan bonus en hinn ekki,, Þorvaldur gat og getur verið á þessum bonus eins og aðrir
en HANN VALDI BEITNINGARVÉLINA vitandi það að hann fengi þetta ekki, eins og svo margir aðrir gera,,, líklega vegna þess að þetta var hagræði fyrir hans og þeirra starfsemi,hvað annað........
Vona að mjaltakonu og mjaltavéla bullinu fari að ljúka.
Hér á sér engin mismunun stað, þetta er val manna
hvort þeir vilja ivilnun eða ekki.
Kveðja Heimir Ingva
Gott kvöld:
Eitt eru beitningavélar og annað beitningatrektir.
Rökstuðningur upphafsmanna þessarrar síðari sértæku línuívilnunar var að hún skapaði atvinnu í landi við útgerð dagróðrabáta. Meirihluti sjávarútvegsnefndar gerði þetta að balaívilnun, þrátt fyrir að í umræðum á Alþingi væri ítrekað bent á að beitning og uppstokkun í landi væri álíka tímafrekt handverk. Hvaða hagsmunir réðu þessarri afstöðu meirihlutans?
Guðmundur Halldórsson sagði síðar:´´ Það var aldrei stefna mín að útiloka stærri báta eða þá sem nota beitningatrektir,, ( viðtal í Morgunblaðinu 13.des 2005). Það er þessi mismunun sem ég er að finna að.
Vilhjálmur Jónsson
Skálanesgata 15
Vopnafirði
Heyr Heyr Vilhjálmur fyrir þín síðustu orð.
Landfræðilegar aðstæður eru mismundandi, sumir staðir hafa betri aðgang að blóðsíld og ekki hægt að beita henni, nema í trekt eða beitningavél. Ég vil samt ekki að beitningvélabátum sé blandað inni þessa umræðu við gætum eins borið saman epli og appelsínu. Því eins og áður hefur komið fram þá var hugmyndin að skapa meiri atvinnu í landi Ekki endilega á einum landshluta sem við erum jú að sjá í dag.
kv
Bryndís
Gott kvöld:
Hér á undan hefur sprottið nokkur umræða, m.a. um balaívilnun.
En eigum við að rýna í upphafið: Nokkrir þingmenn að vestan, í atkvæðaveiðum, misnotaðu aðstöðu sína í sjávarútvegsnefnd, í atkvæðaveiðum, og sérsniðu lögin að sínu kjördæmi. Aðrir landshlutar skiptu þá ekki máli.
Síðan hafa lögskipaðir aðilar í því sama kjördæmi varið þennan gjörning, rakalaust, og forysta LSS þegir þunnu hljóði.
Ég vil benda á, að við afgreiðslu þessarra ólaga á Alþingi, þá bentu Einar Már Sigurðarson og Grétar Már Jónsson ítrekað á þetta misrétti varðandi uppstokkun, en balaívilnun var samþykkt af hálfu stjórnarmeirihlutans.
Hér að ofan talar Sigurður um sóknardagakerfið. Er ekki við hæfi að minnast sálusorgara sóknardagakerfisins, alþingismannanna sem á kosningafundum sögðust mundu verja kerfið til úrslita, en voru svo ansi hjáróma og þöglir þegar það sama kerfi var jarðsett á Alþingi.
Þvímiður gefur þessi síða ekki kost á að senda afrit( eða tölvukunnátta mín þrýtur) en ég kem þessu á framfæri við hlutaðeigandi:
Einar O Kristjánsson
Einar K Guðfinnsson
Kristinn H Gunnarsson
Hjálmar Árnason
Vilhjálmur Jónsson
Skálanesgata 15
Vopnafirði