Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Aukning í útflutningi grásleppukavíars, en verulegur samdráttur í söltuðum hrognum - Landssamband smábátaeigenda

Aukning í útflutningi grásleppukavíars, en verulegur samdráttur í söltuðum hrognum

| Athugasemdir (0)

Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands fyrir fyrstu 7 mánuði ársins hefur orðið aukning í sölu grásleppukavíars. Alls er búið að flytja út 212 tonn en á sama tímabili 2005 voru tonnin 160.
Sömu sögu er ekki hægt að segja um söltuð grásleppuhrogn. Þar er mikill samdráttur á milli ára, rúmlega helmings minnkun, 2.366 tunnur nú á móti 5.272.

Báðar afurðirnar hafa lækkað í verði milli ára. Í evrum talið er hún 16% í grásleppuhrognunum og 17% í kavíarnum. Við þann útreikning er stuðst við meðalgengi evrunnar á tímabilinu.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231