Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Bætt við línuívilnun í ýsu og steinbít - Landssamband smábátaeigenda

Bætt við línuívilnun í ýsu og steinbít

| Athugasemdir (0)

Með útgáfu reglugerðar um veiðar í atvinnuskyni og línuívilnun kemur fram að sjávarútvegsráðherra hefur aukið þann afla sem kemur til línuívilnunar í ýsu og steinbít. Alls nemur viðbótin 500 tonnum, 250 í hvorri tegund.
LS fagnar þessari ákvörðun ráðherra.
Á fiskveiðiárinu takmarkast línuívilnun í ýsu því við 1.722 tonn og 894 tonn í steinbít. Afli sem kemur til línuívilnunar í þorski er lögbundinn 3.375 tonn.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231