Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Þorvaldur Garðarsson endurkjörinn formaður Árborgar - Landssamband smábátaeigenda

Þorvaldur Garðarsson endurkjörinn formaður Árborgar

| Athugasemdir (4)

Í gær var haldinn aðalfundur Árborgar, félags smábátaeigenda á Suðurlandi. Fundurinn var ágætlega sóttur og fjölmörg mál rædd. Meðal þeirra var útfærsla línuívilnunar, kjarasamningar, hrygningarstoppið, frumvarp um áhafnir íslenskra fiskiskipa, ofl.

Stjórn Árborgar var endurkjörin, en hana skipa:
Thorvaldur Gardars 100_1854_2.jpg
Þorvaldur Garðarsson formaður Þorlákshöfn
HaukurJons_2.jpgHaukur Jónsson varaformaður Eyrarbakka
OlafurSigurmunds_2.jpgÓlafur Ingi Sigurmundsson Selfossi
RagnarJons_2.jpgRagnar Jónsson ritari Selfossi
StefanHauks_2.jpgStefán Hauksson gjaldkeri Þorlákshöfn

Aðalfundur Árborgar samþykkti eftirfarandi tillögur til 22. aðalfundar LS sem haldinn verður 26. og 27. október.

1. Árborg hvetur aðalfund LS til að beita sér af alefli fyrir því að lög um línuívilnun verði lagfærð. Aðalfundur Árborgar krefst þess að allir dagróðrabátar sem róa með línu njóti línuívilnunar án tillits til þess hvernig línan er beitt, þó að hámarki 400 þorskígildi hvern róðrardag, enda er það vægast sagt óeðlilegt að stjórnvöld séu að stjórna því með svo beinum hætti hvernig menn beita sína línu. Lagt er til að LS fari fram á viðræður við sjávarútvegsráðherra um málið og skipi 3 manna viðræðunefnd til þeirra viðræðna.

2. Árborg leggur til að LS verði veitt umboð til að ganga frá samningum um laun og kjör á smábátum fyrir hönd félagsmanna sinna.

3. Árborg beinir þeirri tillögu til aðalfundar LS að reynt verði að sjá til þess að páskar falli inn í hrygningarstoppið.

4. Aðalfundur Árborgar beinir þeirri tillögu til aðalfundar LS að þess verði vandlega gætt að miðað verði við 15 metra lengd skipa að lágmarki,(en ekki 12 metra eins og er í frumvarpsdrögum) varðandi réttindi skipstjórnar og vélgæslumanna í væntanlegu mönnunarfrumvarpi. Verði miðað við 12 metra lengd skipa þýðir það umtalsverða skerðingu réttinda bæði varðandi pungaprófið og vélgæsluréttindin.

5. Aðalfundur Árborgar beinir því til aðalfundar LS að mótmæla harðlega öllum framkomnum hugmyndum um breytingar á slægingarstuðlum svo og reglugerð um vigtun sjávarafla.

6. Árborg beinir því til aðalfundar LS að handfæraveiðar verði frjálsar hluta úr ári.

4 Athugasemdir

Gott kvöld:

Mér þykir athyglisvert að ofangreint svæðisfélag skuli þurfa, eitt og sér, að setja fram kröfu um jafnræði í línuívilnun. Þetta er sjálfsagt réttlætismál og sætir furðu að lögskipuð heildarsamtök, þ.e.a.s LSS, skuli ekki hingaðtil hafa sinnt þessu.

Guðmundur Halldórsson, upphafsmaður línuívilnunar, hefur opinberlega lýst þeim vilja sínum að línuívilnun næði til allra dagróðrabáta, en sjávarútvegsráðherra kemst upp með, átölulaust af hálfu LSS, að mismuna línuútgerð árum saman.

Vilhjálmur Jónsson
Skálanesgötu 15
Vopnafirði.

Góða kvöldið
1, Línuívilnun flottur pottur en ekki fyrir allveg alla, bygðarkvóti flottur pottur en ekki fyrir allveg alla. Eru Einhverjir landshlutar sem fá meira en aðrir ? ? Og eru ekki til fleirri pottar. Er ekki til ívillnun fyrir öll kyrrstæð veiðafæri og betri landshluti ( Sterkari þingmenn )
2. Kjaramál, Fiskverð, Hlutaskifti, kostnaður, veikindréttur, olíukostnaður , o.s.frv. ekki hægt að ætla að drífa þetta mál af fyrir stéttarfélögin.
3. Það er nú bara einn Guð og það er Hafró !
4. Frábært að sjá að félaginn minn hann Þorvaldur vakir alltaf yfir öllum smáatrinðum sem betur fer,
svona á nú til að fara fram hjá manni, Nú auðvitað gengur það nú ekki að þér fari að minka við mann réttinidi við vélagæsu og skipstjórn.
5. Líklegast voru þessar tillögur komnar frá LÍÚ þegar þeir voru á fimmta glasi eftir fund og áttu nú ekki fara af barborðinu.
6 Af hverju ekki ?

Og svo önnur smá, Kvótaþak , alltaf töpum við á Suðurnesjum og kanski annarsstaðar líka.

Fryðun á landgrunni fyrir tog- og dragnótaveiðum alltaf töpum við á Suðurnesjum og kanski annarsstaðr líka.

Allavega er þetta að verða spurnig um hvaða þingmenn eru hvar !

Jæja er þetta ekki að verða gott í bili

kveðja
Gunnar Ari Harðarson Grindavík


Úpps Ég gleymdi nú einu atriði, Reinslu árin við kvótasettingu á aukategundum á krókabátum,
hvernig voru þau nú aftur, frekar flókin, en samt enduðu þau þannig. Einhvervegin þannig að það fuku nokkkur tug tonna á annan landshluta hér á landi frá Suðurnesjum og jafnvel víðar, og svo má kannski áfram telja, Ágætt væri nú að vita meira
Kveðja frá Grindavík

Gunnar Ari Harðarson

Gott kvöld:

Ekki virðast þessi orðaskipti að ofan vekja neinn áhuga meðal ,,félagsmanna'' (lögskipaðra) í LSS.

Þar er þó komið víða við og vil ég hvetja Gunnar Ara til að segja klippt og skorið, hvaða landshluta hann telur hafa borið meira úr býtum við allar þær hrókeringar sem þingmenn og stjórn LSS hafa staðið að í smábátakerfinu undanfarin ár. Ekki er það svo að ég sé ósammála flestu því sem hann setur fram.

En aftur að línuívilnun.Ekki eru auðfundin rök sem réttlæta þessa balaívilnun og núverandi form mismunar gróflega línuútgerð smábáta. Hvort samstaða verði á ársfundi LSS um ályktun Árborgar er svo allt annað mál. Þar mun reyna á mismunandi hagsmuni lögskipaðra aðila LSS og öll sanngirni verða aukaatriði.

Best væri að almenn skoðanakönnun fari fram um málið

Vilhjálmur Jónsson
Skálanesgata 15
Vopnafirði

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231