Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Reykjanes, Snæfell og Strandir halda aðalfundi - Landssamband smábátaeigenda

Reykjanes, Snæfell og Strandir halda aðalfundi

| Athugasemdir (0)

Á morgun laugardaginn 30. september verður aðalfundur Reykjaness – félags smábátaeigenda á Reykjanesi. Fundurinn verður í Salthúsinu í Grindavík og hefst kl 17:00. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í störfum félagsins. Í fundarhléi verður kvöldverður í boði félagsins.
Formaður Reykjaness er Gunnar Ari Harðarson. Gunnar Ari100_4397_2.jpg


Aðalfundur Snæfells – félags smábátaeigenda á Snæfellsnesi verður haldinn sunnudaginn 1. október. Fundurinn verður á Hótel Framnesi Grundarfirði og hefst kl 16:00. Að sögn Símonar Sturlusonar formanns SnæfellsSimonIIIDSC01685_2.jpg býst hann við fjölmenni á fundinn, enda mikill hugur í félagsmönnum. Það málefni sem mest er spurt um þessa dagana tengist viðræðum LS við sjómannaforystuna um kjaramál.
Að venju verður félagsmönnum boðið upp á veglegan kvöldverð í boði félagsins.
Nánar um aðalfundinn er að finna á:

http://www.smabatar.is/frettir/2006/09/06/826.shtml


Smábátafélagið Strandir heldur aðalfund á Drangsnesi nk. mánudag 2. október. Fundurinn verður í Samkomuhúsinu Baldri og hefst kl 20:00.
Að sögn Más Ólafssonar á Hólmavík stjórnarmanns í LS hefur haustið verið frekar rólegt á Ströndum.StrandirII100_2449.jpg
„Sú þróun sem átt hefur sér stað í útgerð smábáta hefur einnig náð til Strandamanna. Nokkuð hefur verið um að menn hafi hætt útgerð, sem leiðir til þess að veiðiheimildir verða nýttar af færri bátum. Það kemur þó ekki veg fyrir að hér eru menn áhugasamir fyrir félagsstarfinu og eru það einkum fréttir af grásleppumálum sem spurt er um“, sagði Már.
Formaður Smábátafélagsins Stranda er Haraldur Ingólfsson.


Örn Pálsson framkvæmdastjóri LS mun mæta á fundina


Myndir:
Gunnar Ari Harðarson
Símon Sturluson
Hluti félagsmanna Smábátafélagsins Stranda

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231