Í dag og á morgun er haldinn á Grand Hótel í Reykjavík 22. aðalfundur LS. Fundurinn hófst með setningaræðu formanns LS Arthurs Bogasonar. Þá flutti framkvæmdastjóri LS Örn Pálsson skýrslu sína og að henni lokinni ávarpaði sjávarútvegsráðherra Einar Kristinn Guðfinnsson fundinn.
Nú standa yfir nefndastörf
en áður en þau hófust flutti Ágúst Guðmundsson forstjóri Bakkavarar Group erindi. Hlé var gert á nefndastörfum síðdegis þegar þátttakendur og gestir horfðu á frumsýningu myndarinnar „Þeir fiska sem róa“ sem er heimildarmynd um trillukarla. LS lét gera myndina, en framleiðandi er Lífsmynd ehf.
Mynd: Frá nefndastörfum









Skrifa athugasemd