Aðalfundur Snæfells – félags smábátaeigenda á Snæfellsnesi – var haldinn á Grundarfirði 1. október sl. Fundarsókn var góð þrátt fyrir spegilsléttan Breiðafjörð.
Fundurinn var fullur tíðinda og voru þau helstu þessi.
Formaður Snæfells Símon Sturluson Stykkishólmi gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Nýr formaður var kosinn Alexander Kristinsson.
Að lokinni kosningu stigu nokkrir fundarmanna fram og þökkuðu Símoni fyrir frábært starf í þágu Snæfells. Undir það tóku aðrir fundarmenn með dynjandi lófaklappi.
Símon þakkaði fyrir sig og bauð nýjan formann velkominn og óskaði honum velfarnaðar.
Eftirfarandi samþykktir voru gerðar:
1) Snæfell hvetur aðalfund LS til að beita sér af alefli fyrir því að lög um línuívilnun verði breytt þannig að allir dagróðrabátar sem róa með línu njóti ívilnunar án tillits til þess hvernig línan er beitt. Enda er það vægast sagt óeðlilegt að stjórnvöld séu að stjórna því með svo beinum hætti hvernig menn beita sína línu. Lagt er til að LS fari fram á viðræður við sjávarútvegsráðherra um málið og skipi 3 manna viðræðunefnd til þeirra viðræðna.
2) Snæfell hvetur LS til að leggja til við stjórnvöld að ákveða og gefa út jafnstöðuafla til 4 ára í senn. Einnig hvetur Snæfell til þess að úthlutun veiðiheimilda taki mið af vistvænleika veiðanna og þannig komið á raunhæfri veiðarfærastýringu við nýtingu auðlindarinnar.
3) Snæfell mælir með að veiðisvæði í norðanverðum Breiðafirði þ.s. línuveiðar eru bannaðar verði friðað fyrir öllum veiðarfærum.
4) Aðalfundur Snæfells samþykkir að veita LS umboð til að fara í kjarasamningaviðræður fyrir hönd félagsmanna sinna.
5) Snæfell hvetur félagsmenn sína til að sækja smábátanámskeið Slysavarnarskóla sjómanna þar sem það hefur margoft sýnt sig að sú fræðsla sem menn fá þar er ómetanleg.
6) Fundurinn samþykkir að settar verðar reglur um skötuselsnet, þar sem haft verði til hliðsjónar fjöldi neta og veiðisvæði.
Myndir:
Alexander Kristinsson formaður Snæfells
Hluti fundarmanna á aðalfundi Snæfells











Góðan daginn:
Tek undir þetta réttlætismál í 1. gr hér að ofan.
Vil minna á, að þessi mismunun á upptök í sjávarútvegsnefnd árið 2003 og það er sannarlega ástæða til að krefja sjávarútvegsráðherra, sem stóð að samþykkt mismunarinnar, svara.
Getur hann bent á einhver rök sem réttlæta þessa mismunun, eða réðu sérhagsmunir og kjördæmapot ferðinni?
Það er löngu tímabært að LSS taki á þessu.
Vilhjálmur Jónsson
Skálanesgata 15
Vopnafirði
Ég mótmæli enn og aftur þessari athugsemd um
línuívilnun og vil benda á að ekki er hægt að líta á hana sem mismunun milli "smáúgerðakónga" þar sem þetta er ekki sett fyrir þá heldur til þess einmitt að vernd störf verkafólks fyrir svoleiðis fólki, og vil benda á að ekki er minnst einu orði í ályktun þessa fundar á svo sjálfsögð mannréttindi sem almennir vinnustaðasamningar eru.
Sæll Ólafur:
Ég hefi áður fundið að núgildandi balaívilnun.
Sú mismunun felst í, að vinna í landi við uppstokkun vegna beitningatrekta er einskis metin, en sé beitt í bala, þá er gefin ívilnun.
Bæði eru handverkin álíka tímafrek og oft unnin í sama beitningaskúr, hlið við hlið.
Ef þér finnst þetta í lagi, þá vildi ég heyra einhver efnisleg rök fyrir þeirri skoðun.
kveðja Vilhj
Vilhjálmur Jónsson
Skálanesgötu 15
Vopnafirði
3) Snæfell mælir með að veiðisvæði í norðanverðum Breiðafirði þ.s. línuveiðar eru bannaðar verði friðað fyrir öllum veiðarfærum.
Er ekki í lagi með ykkur á nú líka að loka þessu fyrir færaveiðum ?
Er þetta ekki reglugerðar hólfið sem þið eruð að meina ?
Sæll Vilhjálmur.
Sé um að ræða að trektin sé skapa álíka mörg störf
í landi sé ég ekkert því til fyrirstöðu að ívilna henni en þá þarf líka að stækka pottinn,en það kemur aldrei til greina að mínu mati að hleypa vélinni inn að ég tali nú um færunum eins og talað hefur verið um.
kveðja
Ólafur Jens Daðason
Góðan dag:
Bara að lokum varðandi balaívilnun:
Næsti aðalfundur LSS er no 22. Bæði 21. og 20. aðalfundir hafa ályktað til jafnræðis í línuívilnun. Hafi þær ályktanir hafa ratað á borð ráðherra, þá virðist leiðin hafa verið stutt í ruslakörfuna.
Vilhjálmur Jónsson