Aðalfundur Skalla verður haldinn á Sauðárkróki á morgun laugardag. Fundurinn hefst kl 14:00 og er að venju haldinn í Suðurgötu 3.
Auk venjulegrar aðalfundarstarfa má búast við kröftugri umræðu um dragnótamál, en þar finnst félagsmönnum að sjávarútvegsráðuneytið hafi hunsað þeirra sjónarmið og sveitarstjórnar Skagafjarðar.![]()
Félagsmenn í Skalla hafa verið ötulir við að rita greinar í blöð og mótmæla stjórnlausum dragnótaveiðum í Skagafirði. Þá hafa þeir skilað inn undirskriftum fjölmargra aðila á svæðinu þar sem dragnótaveiðum í Skagafirði er harðlega mótmælt.
Þá samþykkti Byggðaráð Skagafjarðar á fundi 21. september sl. að styðja við erindi Skalla varðandi dragnótaveiðar og fól ráðið sveitarstjóra að ræða við sjávarútvegsráðuneytið af því tilefni.![]()
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna til fundar og taka þátt í umræðum, en samþykktir aðalfundar eru veganesti þeirra sem kjörnir verða á aðalfund LS.
Gestir fundarins verða formaður og framkvæmdastjóri LS.
Formaður Skalla er Hilmar Zophaniasson
Myndir:
Hilmar Zophaniasson
Frá Sauðárkrók











Skrifa athugasemd