Á aðalfundi LS sem haldinn var 26. og 27. október kom fram í ræðu framkvæmdastjóra LS, Arnar Pálssonar, að þorskafli á handfæri hefði á síðasta fiskveiðiári aðeins verið þriðjungur af því sem hann var fyrir 3 árum, fiskveiðiárið 2002/2003. Það ár var þorskaflinn 16.505 tonn en á sl. fiskveiðiári veiddust aðeins 5.703 tonn af þorski á handfæri. Á tímabilinu hefur hlutur handfæranna lækkað úr 8% af heildarþorskaflanum í 3%. Helsta orsök þessa er ákvörðun stjórnvalda að afnema sóknardagakerfi smábáta 2004.
Á heimasíðu Fiskistofu í dag er einnig fjallað um stórfelldan samdrátt á handfæraafla. Auk þess að nefna afnám sóknardagakerfis sem orsakavald, er talið að tilkoma línuívilnunar hafi haft áhrif.
Í frétt Fiskistofu er vakin athygli á að landaður þorskafli á handfæri minnkar um rúmlega 1000 tonn milli fiskveiðiáranna 2001/2002 og 2005/2006 á 4 stöðum.
Patreksfjörður var 1.314 tonn 2001/2002, en á sl. fiskveiðiári 258 tonn.
Suðureyri var 1.235 tonn 2001/2002, en 140 tonn á sl. fiskveiðiári.
Bolungarvík var 1.918 tonn 2001/2002, en á 578 tonn landað á sl. fiskveiðiári.
Grímsey 1.270 tonnum landað 2001/2002, en 192 tonn á sl. fiskveiðiári.
Sjá nánar töflu: http://fiskistofa.is/skjol/frettir/afli_handfaeri_londunarhafnir_2011_2006.pdf
Nánar:http://fiskistofa.is/frettir.php?id=10551











Þeir hljóta að vera kátir nú og stoltir sem lengst gengu fram í því að leggja niður dagakerfið, með þeim árangri sem að ofan greinir. Minni á tillögu Króks frá 23.09 sl. Sem er örlítill óður til frelsisins um að allir eigi einhvern möguleika bjóði aðstæður uppa slíkt. Er full ástæða til þess nú, að rýnt verði í tillöguna í lok þess hrunadans sem stundaður var við Snæfellsnes og sagt var frá hér á síðunni fyrir skömmu.