Fjölmenni var mætt til fundar á Hótel Höfða Ólafsvík fyrr í kvöld. Útvegsmannafélag Snæfellsness boðaði til fundarins þar sem rætt var um síldveiðar í flottroll við Snæfellsnes. Miklar umræður urðu á fundinum og snörp skoðanaskipti. Í lok fundar var samþykkt eftirfarandi ályktun:
„Fundur haldinn í Útvegmannafélagi Snæfellsness 8. nóvember telur að veiðar íslenskra síldarveiðiskipa með flottroll samrýmist illa þeim hugmyndum sem uppi eru um hagkvæmar og sjálfbærar veiðar. Fundurinn telur þær brot á þeim reglum sem settar hafa verið um veiðar í íslenskri landhelgi.
Útgerðarmenn við Breiðafjörð hafa verið forgöngumenn þeirra sem vilja ganga vel um okkar verðmætustu auðlindir. Sjálfir hafa útgerðarmenn lagt til að Breiðafirði væri lokað fyrir flestum veiðum í áratug. Því skorar fundurinn á sjávarútvegsráðherra að draga undanþágu um veiðar með flottrolli innan 12 sjómílna til baka, þannig að sómi sé að umgengni um auðlindir hafsins.“









Lýsi yfir fullum stuðningi við þessa ályktun.
Kveðja Gunnar Pálmason form Bárunnar.
Styð þessa ályktun heilshugar og í sannleika
sagt skil ekkert í sjávarútvegsráðherra.