Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Aðeins helmingur af línuívilnun í þorski nýtt - Landssamband smábátaeigenda

Aðeins helmingur af línuívilnun í þorski nýtt

| Athugasemdir (0)

Fyrsta tímabili línuívilnunar á fiskveiðiárinu lauk 30. nóvember sl. Í þorski var ætlað 1.080 tonn til línuívilnunar, í ýsu 740 tonn og steinbít 28 tonn.

Flest tonn til ívilnunar voru í ýsu 672 sem er 91% af því sem ætlað var. Í þorski var nýtingin hins vegar aðeins tæp 50% eða 535 tonn. Steinbíturinn skilaði sér hins vegar nánast allur eða 27,3 tonn.

Á sama tímabili á sl. fiskveiðiári voru ýsutonnin 846 og 783 tonn í þorski, alls 1.623 tonn sem er rúmum þriðjungi meira en nú.


Unnið upp úr tölum frá Fiskistofu

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231