Fiskistofa hefur birt bráðabirgðatölur um fiskafla á árinu 2006. Þar kemur fram að aflinn er áætlaður 1.324 þúsund lestir, sem er minnsti afli síðan 1991 þegar hann var 1.044 þúsund lestir. Mestur var aflinn 1997 eða 2.199 þúsund tonn.
Þorskaflinn er nú áætlaður 193 (206) þúsund tonn, ýsan 96 (97) þúsund, steinbítur 16 (15) og ufsi 75 (68) þúsund tonn. Tölurnar í sviga er aflinn á árinu 2005.
Það vekur athygli að botnfiskaflinn jókst um 9 þúsund tonn milli ára, er nú áætlaður 528 þúsund tonn.
Helsta ástæða fyrir minni heildarafla er að á árinu veiddust aðeins 184 þúsund tonn af loðnu, en meðaltal áranna 2003, 2004 og 2005 var 603 þúsund tonn.
Unnið upp úr fréttatilkynningu
frá Fiskistofu
http://fiskistofa.is/frettir.php?id=10572











Skrifa athugasemd