Á fundi Hreppsnefndar Höfðahrepps sem haldinn var 14. desember sl. var rætt um dragnótaveiði í Húnaflóa.
Samþykkt var að skora á sjávarútvegsráðherra að banna dragnótaveiðar í Húnaflóa. Orðrétt segir í fundargerð:
„Hreppsnefnd Höfðahrepps skorar á hæstvirtan sjávarútvegsráðherra að banna dragnótaveiðar stærri skipa á Húnaflóa innan línu sem dregin er úr Kálfshamarsvíkurvita á Skaga að Gjögurvita á Ströndum. Hreppsnefnd vísar til þess að á nokkrum stöðum hafa dragnótaveiðar verið takmarkaðar.
Í ljósi þess að Húnaflói hefur á undanförnum árum verið vaxandi sem gjöful fiskimið fyrir báta sem hafa stundað neta og krókaveiðar telur hreppsnefndin full rök fyrir því að settar séu skorður við veiðiaðferðum sem geta ógnað því lífríki sem stendur undir fiskistofnum í flóanum.
Ályktunin var samþykkt og sveitarstjóra falið að koma henni á framfæri.“











Skrifa athugasemd