Brimfaxi á nú að hafa borist öllum félagsmönnum LS ásamt almanaki 2007.
Meðal efnis í Brimfaxa er fastur dálkur Heimahöfn, en þar fjallar Hjörleifur Guðmundsson um Patreksfjörð. Einnig segir Hjörleifur frá Strandveiðifélaginu Króki. Þá er greint frá síðasta aðalfundi Króks.
Fjallað er um ný fiskiker frá Sæplasti undir fyrirsögninni: „Ný byltingarkennd fiskiker“.
Aðalfundi LS 2006 eru gerð góð skil með útdrætti úr ræðu sjávarútvegsráðherra og skýrslu framkvæmdastjóra LS, ásamt setningarávarpi formanns LS.
Þýðing greinar úr tímaritinu Science frá nóvember sl. þar sem fram kemur að þriðjungur fiskistofna sé hruninn og að þeir sem eftir séu hrynji innan fimmtíu ára verði ekkert að gert.
Viðtalið er við Leif Halldórsson á Patreksfirði
Grein eftir Einar Júlíusson eðlisfræðing, „Aldursaflagreining og stofnmæling“.
Leiðarann ritar Örn Pálsson framkvæmdastjóri LS










Það kom mér óneitanlega á óvart að Brimfaxi skyldi birta gagnrýnislitla umfjöllun um falsspána um hrun fiskistofna heimsins árið 2048.
Í óðagoti við að koma fréttatilkynningu út um dómsdagsspána sem greindi frá eyðingu fiskistofna 2048 var óvart sent bréf til fjölmiðla sem sýndi samskipti höfundar skýrslunnar við samstarfsmenn sína. Samskiptin greindu frá því að helsta ástæðan fyrir framreikningunum til ársins 2048 væri sú að það yrði að búa til beitu fyrir fjölmiðla. Það er óhætt að fullyrða að helstu fjölmiðlar heimsins hafi kokgleypt beituna en tilgangurinn var sá að vekja áhuga þar sem fullyrt var að lítill áhugi væri á innihaldi skýrslunnar nema fyrirsjáanleg væru einhver endalok á næstu áratugum.
Á heimasíðu Boris Worms höfundar falsspádómsins má lesa að hann skrifar ekki um fiskveiðar með yfirveguðum hætti heldur talar um sjómenn nánast sem glæpamenn.
Ef skoðuð eru línurit sem birtust í Brimfaxa og eru úr greininni í Science sést að "vísindamennirnir fullyrða um stærð fiskistofna þúsund ár aftur í tímann eða allt aftur til þjóðveldisaldar!
Boris Worms, Ransom Myers og A. Rosenberg sem hafa náin tengsl við Hafró koma reglulega með skýrslu sem þessa og fyrir þrem árum skrifuðu þeir tveir fyrstnefndu bréf til Nature þar sem dregnar voru víðtækar ályktanir út frá rýrum gögnum en þeir eru báðir starfandi við sama háskólann, Dalhousie University. Ransom Myers var hér sérstakur hátíðargestur á 40 ára afmæli Hafró.