Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Krókaaflamarksbátar auka hlut sinn milli ára - Landssamband smábátaeigenda

Krókaaflamarksbátar auka hlut sinn milli ára

| Athugasemdir (0)

Þegar árið 2006 er kvatt og nýju heilsað er ekki úr vegi að líta á aflatölur.
Heildarafli krókaaflamarksbáta 2006 varð 74.361 tonn sem er aukning um 7.946 tonn, 12% milli ára.
Mest var veitt af þorski 37.530 tonn (38.769), 22.846 tonn af ýsu (18.558) og steinbít 6.547 tonn (4.818). Tölur í svigum sýna aflann á árinu 2005.

Einkar ánægjulegt er að sjá hversu hlutur krókaaflamarksbáta í heildarafla þessara tegunda hefur aukist á árinu 2006. Þorskafli þeirra varð 19,3% af heildarþorskaflanum (18,3%). Veruleg aukning varð í ýsu og steinbít, 23,8% (19,2%) í ýsu og 40,2% í steinbít (31,6%). Samanlagt í þessum þremur tegundum varð hlutur krókaaflamarksbáta á árinu 2006 21,8% (19,2%).

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231