Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Grásleppuvertíðin nálgast - Landssamband smábátaeigenda

Grásleppuvertíðin nálgast

| Athugasemdir (0)

Mikið er nú spáð og spekúlerað varðandi komandi grásleppuvertíð. Áfram verður að standa á bremsunni varðandi veiðina og ekki ráðlegt að veiða meir en á síðustu vertíð.

LS hefur nú fengið tölur frá Hafrannsóknastofnun um þátttöku í veiðunum á sl. 10 árum 1997 - 2006. Það kemur ekki á óvart að fæstir voru grásleppubátar á veiðum á vertíðinni 2006 aðeins 163 bátar. Aðeins 30 fleiri stunduðu veiðarnar 2001. Flestir voru hins vegar á veiðum 2004, 353 bátar og þar á eftir kemur vertíðin 1998, 277 bátar.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231