Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Mikil óánægja á Ströndum - Fiskistofa og Hafrannsóknastofnun fara offari í skyndilokunum - Landssamband smábátaeigenda

Mikil óánægja á Ströndum - Fiskistofa og Hafrannsóknastofnun fara offari í skyndilokunum

| Athugasemdir (0)

Í gær var greint frá því að nýtt skyndilokunarmet hefði verið sett á sl. ári. Allt bendir nú til að bæta eigi um betur á þessu ári þar sem nú 16. febrúar eru skyndilokanir orðnar 35 talsins.

Eitt af nýrri afrekum í þessum efnum er skyndilokun nr. 27 af heimamönnum á Ströndum nefnd klósettlokunin á Húnaflóa.
Sjá mynd
http://www.hafro.is/images/upload/027-07.pdf

„Menn hér á Ströndum eru vægast sagt æfir yfir þessum vinnubrögðum, það var nánast allri veiðislóðinni lokað með einni lokun.Holmavikok100_5112.jpg Það var gerð mæling úr bát norður við Selsker önnur við Kaldbaksvík og tvær inni í Vatnsnesál. Á milli þessara báta voru 40 mílur og öllu svæðinu þar á milli lokað. Allur vestur kantur Húnaflóa lokaður.“ sagði Már Ólafsson á Straumi ST Hólmavík.

Már sagði það óumdeilt að mikið væri af smáfiski á svæðinu. „En venjan er að loka kassa umhverfis viðkomandi mælingu. Við það gætu menn sætt sig við, en þetta er út úr öllu korti. Nú þarf að sækja á aðra staði, þar er sama magn af smáfiski en minna af stærri fiski. Hér á Ströndum eru menn mjög illir yfir þessu og margir hugsa Fiskistofu þegjandi þörfina“, sagði Már.


Myndin er frá Hólmavík

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231