Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Sjálfstæðismenn í Bolungarvík vilja bjóða út rannsóknir á lífríki hafsins - Landssamband smábátaeigenda

Sjálfstæðismenn í Bolungarvík vilja bjóða út rannsóknir á lífríki hafsins

| Athugasemdir (0)

Aðalfundur Sjálfstæðisfélagsins Völusteins sem haldinn var í Einarshúsi í Bolungarvík um sl. helgi fjallaði m.a. um boðaðan niðurskurð Hafrannsóknastofnunar á þorski. Af því tilefni samþykkti fundurinn eftirfarandi ályktun:

„Veiðum á mikilvægasta nytjastofni þjóðarinnar, þorski, hefur nú verið stjórnað með aflamarkskerfi í rúmlega tvo áratugi. Því miður hefur árangur þeirrar stjórnunar ekki verið sem skyldi og enn er boðaður stórfelldur niðurskurður veiðiheimilda. Sjómenn efast um að ástandið sé rétt metið því jafnan gengur illa að sneiða hjá þorski þegar reynt er að veiða aðrar tegundir.

Aðeins ein ríkisrekin vísindastofnun stundar rannsóknir á lífríki hafsins við Íslandsstrendur og gefur síðan út veiðiráðgjöf, byggða á eigin rannsóknum. Eðlilegra væri að bjóða rannsóknir út til sjálfstæðra vísindamanna og Hafrannsóknastofnun mæti niðurstöður þeirra. Slíkt fyrirkomulag leiðir til markvissari rannsókna sem ætti að skila sér í betri niðurstöðum fyrir fiskveiðistjórnun Íslendinga. Verulegur niðurskurður þorskveiðiheimilda þarf að byggjast á traustari forsendum en við höfum í dag því veiðimagnið er nú þegar undir þolmörkum þeirra byggða sem eru háðastar þorskveiðum.

Hætt er við að boðaður niðurskurður þorskveiðiheimilda kippi stoðum undan rekstri sjávarútvegsfyrirtækja í sjávarþorpum landsins. Slíkt getur valdið byggðahruni sem færir okkur enn fjær því að sátt verði um fiskveiðistjórnunarkerfið.“

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231