Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Minna veitt af þorski en á sama tíma í fyrra - Landssamband smábátaeigenda

Minna veitt af þorski en á sama tíma í fyrra

| Athugasemdir (0)

Á undanförnum dögum hefur fjölmiðlum verið tíðrætt um hátt leiguverð á þorski.

Í gær 20. mars voru 547 tonn leigð í krókaaflamarki og var meðalverð 131 kr/kg, hæst fór verðið í 160 kr/kg en aðeins 2,5 tonn voru á bakvið þau viðskipti.

Í aflamarkinu voru 289 tonn sem fóru milli aðila og var meðalverð 182 kr/kg, þar fór verðið hæst í 190 kr/kg, samtals 35 tonn.

Það vekur athygli að á sama tíma og leiguverð á þorski er svo hátt hefur veiðin dregist saman um 20 þúsund tonn milli ára. Sl. mánudag 19. mars voru krókaaflamarksbátar búnir að nýta 41% (54%) af úthlutuðum heimildum á fiskveiðiárinu í þorski, en aflamarksskip 59% (68%). Tölur í sviga sýna sama tímabil á fiskveiðiárinu 2005/2006.


Tölur unnar upp úr: www.fiskistofa.is

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231