Þegar tvö tímabil af fjórum eru búin af línuívilnun þessa fiskveiðiárs er ljóst að nýting línuívilnunar er lakari en í fyrra. Ein skýring þess er að bátum sem nýta sér ívilnun nú hefur fækkað úr 297 í 260.
Í þorski var ætlað 2.360 tonn til ívilnunar en afli sem kom til hennar varð 1.368 tonn (1.759).
Ýsan nýttist hins vegar öll en þar voru tekin frá 1.292 tonn, en aflinn varð 1.303 tonn (1.511).
Í steinbít voru 118 tonn ætluð til ívilnunar og varð aflinn 97 tonn (117).
Ath. Tölur í sviga eru fyrir sömu tímabil á fiskveiðiárinu 2005/2006.
Sjá nánar:
http://fiskistofa.is/linuivilnun.php











Skrifa athugasemd