Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Útför Eiríks M. Þórðarsonar - Landssamband smábátaeigenda

Útför Eiríks M. Þórðarsonar

| Athugasemdir (0)

Í dag föstudaginn 23. mars fer fram frá Ísafjarðarkirkju útför Eiríks M. Þórðarsonar. Athöfnin hefst kl. 14:00. Eiríkur fórst ásamt Unnari Rafni Jóhannssyni er Björgu Hauks ÍS hvolfdi í mynni Ísafjarðardjúps 13. mars sl.

Vinir Eiríks hafa hrint af stað söfnun til styrktar eftirlifandi sambýliskonu hans Pálínu Þórarinsdóttur og fjölskyldu. Söfnunarreikningurinn er hjá Glitni á Ísafirði og númer 0556-14-603900, kt. 060951-3499

Myndin sem fylgir þessari frétt er af Eiríki við þau störf sem hann unni. Hann var sjómaður í húð og hár og allir sem þekktu hann vissu að hvergi unni hann sér betur en á og við sjóinn.

Landssamband smábátaeigenda vottar aðstandendum hinna látnu dýpstu samúðar.
LS þakkar Eiríki störf hans í þágu trillukarla.Eth.jpg

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231