Á sl. fiskveiðiári var aðeins 2% af lönduðum þorski veiddur á handfæri. Hlutdeild handfæraveiða hefur farið ört minnkandi á sl. árum, en á fiskveiðiárinu 2002/2003 var hlutur þess 8% þorskaflans. Alls var hann þá 16.505 tonn en á sl. ári aðeins 4.409 tonn.
Það vekur einnig athygli að á sl. fiskveiðiári hefur hlutur botnvörpu og neta í þorski aukist um eitt prósentustig, en línu minnkað um tvö.
Þorskaflinn skiptist þannig á veiðarfæri:
Botnvarpa………….85.741 tonn
Lína………...……...67.230 tonn
Net……………...…24.146 tonn
Dragnót……....……..9.514 tonn
Handfæri……………4.409 tonn
Flotvarpa……………1.205 tonn
Á myndinni hér að neðan má sjá þróunina sl. fimm ár.
Tölurnar unnar upp úr gögnum frá Fiskistofu











Skrifa athugasemd