Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Snæfell styður ákvörðun sjávarútvegsráðherra um stöðvun loðnuveiða - Landssamband smábátaeigenda

Snæfell styður ákvörðun sjávarútvegsráðherra um stöðvun loðnuveiða

| Athugasemdir (0)

Í dag fjallaði stjórn Snæfells um loðnuveiðar. Eftirfarandi ályktun var samþykkt:


„Stjórn Snæfells – félags smábátaeigenda á Snæfellsnesi – lýsir stuðningi við ákvörðun sjávarútvegsráðherra um stöðvun loðnuveiða vegna lélegs loðnustofns að mati Hafró. Snæfell hefur í mörg ár varað við of mikilli sókn í loðnuna.

Snæfell ítrekar kröfu sína um að loðna skuli eingöngu veidd til manneldis og harmar að ekki skuli hafa verið stefnt markvisst af því nýta hana með þeim hætti.

Snæfell bendir á að nú stefnir í þriðju vertíðina á jafnmörgum árum á Breiðafirði þar sem fiskgengd er með allra besta móti. Holdafar fisksins er gott og hafa takmarkanir loðnuveiða undanfarin ár haft þar áhrif auk þess sem komið var í veg fyrir síldveiðar með flottrolli fyrir réttu ári.

Að lokum ítrekar Snæfell mótmæli sín við notkun flottrolls við loðnu og síldveiðar.“

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231