Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Grásleppuveiðin í Noregi - Landssamband smábátaeigenda

Grásleppuveiðin í Noregi

Grásleppuvertíðin í Noregi hefur gengið mun betur í ár en undangengin 2 ár. Búið er að landa 418 tonnum að verðmæti 11,5 milljónum norskra króna.

Á sama tíma í fyrra var veiðin komin í 243 tonn og 229 tonn á vertíðinni 2006.

280 bátar hafa stundað veiðarnar í ár og eru 100 þeirra komnir með yfir 2 tonn og 80 hafa nú þegar náð kvótanum sem er 2.500 kg af hrognum.

Á vertíðinni 2007 var saltað í 2.536 tunnur í Noregi.

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231