Aðalfundur Kletts var haldinn á Akureyri sunnudaginn 28. september sl.
Fundarsókn var góð, en í ræðu formanns félagsins Péturs Sigurðssonar hefur félagsmönnum fækkað mikið á undanförnum árum. 2004 voru bátar í eigu félagsmanna 142 en það sem af er yfirstandandi ári hafa 67 bátar landað afla.
Fundurinn sendi frá sér fjölmargar ályktanir. Meðal þeirra voru:
- Áskorun til sjávarútvegsráðherra að auka þorskkvótann nú þegar. Útgerðirnar, fiskvinnslan og
byggðalögin komast ekki af til lengdar með núverandi þorskkvóta.

- Klettur vill skýrari reglur um byggðakvótann og það sé með öllu óþolandi að hugtökunum byggðarlag og sveitarfélag skuli vera rúllað fram og aftur í núverandi reglugerð með tilheyrandi mistúlkun.
- Aðalfundur Kletts er hlynntur því að komið verði á handfærakerfi með miklum takmörkunum til að tryggja nýliðun i greininni.
- Klettur skorar á sjávarútvegsráðherra að hækka nú þegar prósentu í línuívilnun og tryggja að hún nái til allrar línu sem unnin er í landi hvort sem hún er landbeitt eða stokkuð upp.
- Aðalfundur Kletts skorar einnig á ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála að loka Eyjafirði og Skjálfanda fyrir dragnótaveiðum allt árið.
- Klettur er andvígur þorsknetaveiðum krókabáta.
Stjórn
Kletts skipa eftirtaldir:
Pétur Sigurðsson Árskógssandi
- jafnframt fulltrúi Kletts í stjórn LS
Sigfús Jóhannesson Grímsey
Svanur Ottósson Dalvík
Sigurður Kristjánsson Húsavík
Þröstur Jóhannsson Hrísey
- jafnframt varafulltrúi Kletts í stjórn LS











Skrifa athugasemd