Mikið var rætt um dragnótaveiðar á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda. Á köflum var mikill hiti í umræðunni og var krafa fundarmanna skýr, dragnótaveiðar burt úr fjörunum.
Samþykktar voru fjölmargar tillögur þar sem skorað var á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að takmarka veiðisvæði dragnótaskipa.
Suðurland
Fullyrt var, eins og bent hafði verið á, að búið væri að rústa fengsælum ýsumiðum á svæðinu frá Þorlákshöfn austur að Vestmannaeyjum. Meðal skipa sem veitt hafa þar með dragnót er stór togari.jpg.pdf.
Af því tilefni samþykkti fundurinn eftirfarandi tillögu:
¨
Að
reglugerðarbreyting sem heimilar snurvoðaveiðar
upp í fjöruborð á svæðinu frá Þorlákshöfn og alveg austur fyrir Vestmannaeyjar
verði þegar í stað dregin til baka. Aðalfundur LS mótmælir
harðlega þessum veiðum og telur óskiljanlegt að þær hafi verið heimilaðar þar
sem reynsla er fyrir því að slíkar veiðar fara mjög illa með ýsustofninn á
þessu svæði og mörg ár eða áratugi
tekur að byggja upp ýsugengd á svæðinu eftir notkun snurvoðar.
Vestfirðir
Ekki er minni undiraldan hjá Vestfirðingum út í dragnótina. Í ályktunum aðalfundarins var m.a. samþykkt að teknar yrðu aftur í gildi línur sem takmörkuðu aðgang dragnótaskipa.
Tillögurnar eru þessar:
¨ Að snurvoðaveiðar báta lengri en 20 metrar innan grunnlínupunkta verði bannaðar fyrir Vestfjörðum.
¨
Að
allar dragnótaveiðar á bátum lengri en 20 m verði bannaðar innan línu sem
dregin er frá Blakksnesi um
Kópanesvita í Fjallaskagavita.
¨
Allar
dragnótaveiðar verði bannaðar innan línu sem dregin er úr Ólafsvita í Tálkna og þaðan Krossdal og þvert yfir
Arnarfjörð eftir línu 23°48"0 V.
Norðurland
Hjá Norðlendingum er ekki minni andstaða gegn dragnótaveiðum. Mestar áhyggjur hafa menn af veiðum dragnótaskipa inni á Skaga-, Eyjafirði og Skjálfanda.
Eftirfarandi var samþykkt:
¨
Að
fara að tillögu Byggðaráðs Skagafjarða um að banna dragnótaveiðar í innanverðum Skagafirði.
Taki
bannið gildi nú þegar og gildi þar til rannsóknir Hafrannsóknastofnunar um
áhrif dragnótaveiða á lífríki Skagafjarðar liggja fyrir.
¨
Að
loka Eyjafirði og Skjálfanda fyrir
dragnótaveiðum allt árið.
Austurland
Hringnum um dragnótina var lokað með samþykkt aðalfundarins sem tekur til Austurlands.
Tillagan er eftirfarandi:
¨
Að
banna dragnótaveiðar inni á fjörðum og innan 3 sjómílna frá landi inná flóum fyrir Austurlandi.











Skrifa athugasemd