Í dag er lokadagur Sjávarútvegssýningarinnar 2008. Mikil aðsókn hefur verið að sýningunni og í dag er búist við miklu fjölmenni.
Stöðugur straumur hefur verið á sýningarsvæði landssambandsins - A102 - og mikill og góður rómur gerður að því sem þar er boðið uppá. Bæklingar bæði á íslensku og ensku, kynningar, kvikmynd og hinn gríðarvinsæli réttur „ferskt úr sjó“ sem um eitt þúsund sýningargestir hafa smakkað á.
Hér á eftir eru nokkrar myndir frá sýningunni:Aflakóngar - Sigurgeir á Sirrý ÍS
og Egill á Guðmundi Einarssyni ÍS

Margkrýndur aflakóngur Guðmundur Einarsson
ásamt Daða Guðmundssyni

Forstjóri Hafró gæðir sér á

„Ferskt úr sjó“












Skrifa athugasemd