Aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur var haldinn
29. september sl. í húsnæði félagsins í Grófinni - Verbúð 5.
Fundurinn var líflegur og fjölmargt sem bar á góma. Í skýrslu formanns, Garðars Berg, kom m.a. fram að náðst hefði langþráð markmið félagsins að útbúin yrði upptökubraut á svæði félagsins. Hún er nú komin í gagnið en sökum þess að ekki var haft samráð við væntanlega notendur við smíði hennar er hún hin mesta vansmíð og minnst 5 aðila þörf til að hjálpa við upptöku og sjósetningu. Þrátt fyrir að ítrustu varkárni sé gætt eru skemmdir algengar á bátum og einnig geta aðstæður verið hættulegar. Krafa félagsins er að framkvæmdin verði tafarlaust lagfærð.
Bátar í eigu félagsmanna sem lönduðu afla á sl.
ári voru 53.
Aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur samþykkti eftirfarandi tillögur:
- Handfæraveiðar hafa orðið fyrir mestri skerðingu, þar sem aflaheimildir þeirra eru nær eingöngu í þorski. Stuðningur við handfæraveiðar er stuðningur við sjávarbyggðirnar. Hér gilda því sömu rök og eiga við um línuívilnun. Það yrði vonandi til að halda í þessa fáu báta sem eftir eru. Það er líka ástæða fyrir okkur að varðveita verkþekkingu og þekkingu á lífríki og veiðimynstri á grunnsævi hvers staðar sem annars gæti glatast.
- Standa vaktina gagnvart svonefndum vottunarsamtökum eins og t.d. MSC.
- Standa vörð um óbreyttan slægingarstuðul.
- Aðför að atvinnuréttindum mótmælt. Ekki komi til greina að heimilt sé að svipta skipstjórnarmenn 30 tonna réttindunum hafi þeir ekki verið við skipstjórn í 5 ár.
- Byggðakvóti að úthlutunarreglur verði ekki þær sömu fyrir handfæra- og línubáta vegna ólíkrar aflasamsetningar.
- · Jafnstöðuafla 220 þús. tonn í 2 - 3 ár.
Greinargerð: Sjómenn eru vissir um að mikið sé af þorski í sjónum. Hafró er á öðru máli. Látum þjóðina njóta vafans. Nú vantar lífsnauðsynlega gjaldeyrir og það fljótt.
Í
lok fundar var stjórnarkjör. Allir
stjórnarmenn gáfu kost á sér og voru endurkjörnir með kröftugu lófataki.
Stjórn
Smábátafélags Reykjavíkur:
Garðar
Berg Guðjónsson formaður
Þorvaldur
Gunnlaugsson varaformaður
Konný
Breiðfjörð Leifsdóttir ritari
Jón
F. Magnússon gjaldkeri
Guðmundur
Jónsson meðstjórnandi











Skrifa athugasemd