Aðalfundur
Smábátafélagsins Stranda var haldinn á Malarkaffi Drangsnesi sl. laugardag 11.
október. Félagsmenn fögnuðu um
leið 20 ára afmæli félagsins, en það var stofnað 24. september 1988.
Prýðileg mæting
var á fundinn og mikil og góð umræða.
Stóð fundurinn frá 11 árdegis til kl fjögur. Meðal þess sem fundurinn samþykkti voru eftirtaldar
áskoranir til sjávarútvegsráðherra:
- að auka strax veiðiheimildir í þorski
- hækka línuívilnun í 20%
- standa vörð um byggðakvótann þannig að honum verði áfram úthlutað, sjávarþorpum landsins til hagsbóta
- gefa frjálsar handfæraveiðar með þeim takmörkunum að hver maður megi hafa tvær handfærarúllur og fjórar handfærarúllur að hámarki á bát
- tryggja næga fjármuni til BioPol á Skagaströnd til áframhaldandi rannsókna á grásleppu.
Smábátafélagið Strandir vill hafa fyrirkomulag grásleppuveiða með sama hætti og á síðustu vertíð. Þá samþykkti aðalfundurinn að fjallað yrði um það á aðalfundi LS hvort krókaaflamarksbátum skildi heimilaðar netaveiðar.
Smábátafélagið
Strandir mótmælir ákvæði laga nr. 30
23. mars 2007 og reglugerðar nr. 175 19. febrúar 2008 sem felur í sér að
menn missi skipstjórnarréttindi sín hafi þeir ekki stundað sjómennsku í fimm ár. Telur fundurinn gróflega brotið á mönnum með þessu
ákvæði.
Stjórn Stranda:
Haraldur Ingólfsson formaður Drangsnesi
Anna Þorbjörg Stefánsdóttir ritari Hólmavík
Már Ólafsson gjaldkeri Hólmavík sem jafnframt er fulltrúi félagsins í stjórn LS.









Skrifa athugasemd