Síðast liðna 10 daga hefur meðalverð á óslægðum þorski á fiskmörkuðum ekki farið niður fyrir 300 krónur. Hæsta verðið á þessu tímabili var í dag 346 kr sem er 14% hærra en fyrir viku síðan.
Sömu sögu er að segja um ýsuna, þó verðsveiflur þar séu meiri en í þorskinum. Í gær seldist óslægð ýsa á 238 krónur sem er með því hæsta sem sést hefur á fiskveiðiárinu. Eins og gjarnan gerist í fimmtudagssölu fellur verðið, en náði þó 203 krónum í dag sem verður að teljast ágætt þegar litið er til vikunnar áður, en þá skilaði fimmtudagurinn meðalverði upp á 165 krónur.
Hér má sjá meðalverð á óslægðum þorski og ýsu á fiskmörkuðum hvern dag frá 6. október.
Sjá nánar söluna í dag











Skrifa athugasemd