Fyrsta tímabili línuívilnunar lýkur nk. sunnudag 30. nóvember.
Nýting ýsunnar er góð 620 tonn hafa komið til ívilnunar af 688 sem sett eru á tímabilið.
Í þorski hefur helmingi minna komið til ívilnunar en í ýsunni, 337 tonn það sem af er tímabilinu af 1.080 tonnum. 1. tímabil í fyrra gaf 288 tonn í ívilnun.
Af þessum tölum er ljóst að knýjandi er að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra leggi fram frumvarp um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða sem tryggi að veiðiheimildir sem ætlaðar eru til línuívilnunar nýtist dagróðrabátum að fullu.











Skrifa athugasemd