Á tímabilinu janúar - október varð þorskaflinn 124.079 tonn sem er tæpum 27 þús. tonnum minna en á sama tímabili í fyrra eða sem nemur öllum þorskafla krókaaflamarksbáta á þessum fyrstu 10 mánuðum ársins.
Í prósentum talið er þorskaflinn nú 17,8% minni en í fyrra.
Þorskaflinn er 7,5% minni hjá krókaaflamarksbátum og fimmtungi minni hjá skuttogurum og aflamarksbátum.
Þetta og fleira má lesa út úr tölum sem Hagstofan birti í dag.









Skrifa athugasemd