Meðalverð á óslægðum þorski á síðustu þremur vikum var 317 kr/kg sem er með því hæsta sem sést hefur. Hæst var kílóaverðið 20. nóvember 345 kr, en lægst var það í dag 263 kr á þessu þriggja vikna tímabili. Ekki er ólíklegt að mikil styrking krónunnar undanfarna tvo daga sé strax farið að gæta þar sem meðalverð á óslægðum þorski í dag var 13,5% lægra en í gær.
Sams konar verðsveifla var á óslægðri ýsu. 154 krónur fengust fyrir kílóið í dag sem er 30 krónum lægra en í gær 4. desember. Eins og í þorskinum er verðið í dag það lægsta sem sést hefur á sl. 3 vikum. Hæst fór óslægða ýsan á þessu tímabili í 236 kr, miðvikudaginn 19. nóvember. Meðalverðið á tímabilinu var 193 kr/kg.











Skrifa athugasemd