Það vekur aðdáun að sjá hversu umgengni línubáta um auðlindina er góð. Skýrsla Hafrannsóknastofnunarinnar um brottkast botnfiska á árinu 2007 segir þar allt sem segja þarf.
Við ýsuveiðar var brottkast ekki mælanlegt og við veiðar á þorski kom í ljós að 99,7% aflans skilar sér í land.
Taflan hér að neðan er úr skýrslunni og sýnir mælingar á brottkasti 2007 við þorsk- og ýsuveiðar.










