Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Steingrímur J. Sigfússon hefur fallist á beiðni LS um að bæta einni viku við þann tíma sem ætlaður var til grásleppuveiða. Í stað 55 daga verður heimilt að stunda veiðar í 62 daga.
Í bréfi LS til ráðherra kom fram að ástæður beiðninnar væru m.a. miklar ógæftir sem valdið hefði veiðitapi og tjóni á veiðafærum sem í mörgum tilfellum hefðu glatast með öllu. Þá bæri að líta til þess að mikil eftirspurn væri nú eftir grásleppuhrognum og verð í sögulegu hámarki.
Einnig var bent á að heildarmagn sem komið væri að landi á vertíðinni væri nú fimmtungi minna en á sama tíma í fyrra.











Skrifa athugasemd