Sækja má alla daga utan laugardags og sunnudags. Hver róður má að hámarki standa í 12 klst og ekki má veiða meir en 800 kg af þorski í hverri veiðiferð. Rói menn einir mega þeir nota 2 handfærarúllur og að hámarki 4 ef fleiri eru um borð.
Samkvæmt frumvarpinu er landinu skipt í fjögur veiðisvæði og þeim 3.955 tonnum (2.500 tonn aukaúthlutun og 1.455 tonn úr byggðakvóta) sem ætlaðar eru til veiðanna deilt niður á þau. Skiptingin er eftirfarandi:
A. Eyja- og Miklaholtshreppur - Skagabyggð 1.316 tonn
B. Sveitarfélagið Skagafjörður - Grýtubakkahreppur 936 tonn
C. Þingeyjarsveit - Djúpavogshreppur 1.013 tonn
D. Sveitarfélagið Hornafjörður - Borgarbyggð 690 tonn
Í frumvarpinu er ákvæði um að hefji menn strandveiðar þá fellur veiðileyfi í atvinnuskyni niður það sem eftir er fiskveiðiársins.
Sjá nánar frumvarpið











Skrifa athugasemd