Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Elding mótmælir fyrningarleið harðlega - Landssamband smábátaeigenda

Elding mótmælir fyrningarleið harðlega

Hinn 4. júní sl hélt Elding, félag smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum, stjórnarfund.  
Eftirfarandi ályktun var samþykkt:

„Stjórn Eldingar - félags smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum - skorar á ríkisstjórn Íslands að falla frá öllum hugmyndum um innköllun veiðiheimilda og einbeita sér þess í stað að tryggja stöðugleika og bjarta framtíð í sjávarútvegi. 


Stjórn Eldingar telur það ábyrgðarlaust með öllu að ráðast að undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar - sjávarútveginum - með það að markmiði að svipta hann veiðirétti sem hann hefur aflað sér á grundvelli laga um stjórn fiskveiða og skilja hann eftir með skuldir sem aflaheimildir áttu að standa undir á komandi árum. 

Ísafirði 4. júní 2009

Birkir Einarsson

formaður Eldingar“



Picture 8.png

Bolungarvík á fallegum degi
 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231