Fréttamaður frá NRK - ríkissjónvarpið í Noregi - var hér á landi fyrir skömmu og kynnti sér sjónarmið Íslendinga til Evrópusambandsins.
Í fréttinni er vikið að mikilvægi sjávarútvegsins fyrir Ísland, um helmingur þjóðartekna komi frá honum þrátt fyrir að fáir landsmenn starfi við hann.
Eins og í Noregi séu skiptar skoðanir um að Ísland gangi í Evrópusambandið og sjómenn óttist að efnahagshrunið geti orðið til þess að ákvörðun um inngöngu verði tekin í fljótræði.
Í niðurlagi fréttarinnar sagði fréttamaðurinn að þrátt fyrir eindregna andstöðu sjómanna við inngöngu mundi ríkisstjórnin sækja um aðild að Evrópusambandinu.











Skrifa athugasemd