Málþing um auðlindastýringu og fyrningarleið ríkisstjórnarinnar var haldið í Vestmannaeyjum 4. júní sl. Þekkingarsetur Vestmannaeyja, Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, Vestmannaeyjum og Vestmannaeyjabær voru aðilar að skipulagningu málþingsins sem tókst í alla staði afar vel. Mæting á málþingið var mjög góð eða um 200 manns.
Málþingið hófst á setningarávarpi Elliða Vignissonar bæjarstjóra, en á eftir honum fluttu eftirtaldir framsögu:
Atli Gíslason, alþingismaður og formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis
Þórólfur Matthíasson, prófessor við Háskóla Íslands
Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins
Þorvarður Gunnarsson framkvæmdastjóri Deloitte
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda
Elínbjörg Magnúsdóttir, fiskvinnslukona, fulltrúi fiskvinnslu
Eiríkur Tómasson, forstjóri Þorbjörns hf. í Grindavík, fulltrúi útgerða
Eyrún Sigþórsdóttir, sveitastjóri Tálknafjarðarhrepps, fulltrúi sveitarfélaga.
Skoða má glærur frá framsögumönnum hér.
Í erindi Arnar Pálssonar kom fram sjónarmið smábátaeigenda til innkölunar aflaheimilda. Örn lagði áherslu á að sátt næðist meðal þjóðarinnar um sjávarútveginn og vakti athygli á að útgerðinn hefði á sl fjórum árum greitt 2,4 milljarða í veiðigjald. „Ég hvet hér með til sátta þannig að í stað fyrningarleiðar komi hækkun á veiðigjaldi sem taki, eins og eðlilegt getur talist, mið af afkomu atvinnugreinarinnar.“











Skrifa athugasemd